Skilmálar þessir gilda um allar pantanir hjá inniskór.is.
Afhendingarskilmálar
Við sendum vörur með Póstinum og Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar þess flutningsaðila sem um ræðir. Pantanir eru póstlagðar eigi síðar en tveimur virkum dögum eftir að greiðsla hefur borist, nema annað sé tekið fram. Athugið að sendingar út á land geta tekið nokkra daga að berast.
Komi upp sú staða að vara er ekki til á lager, er viðskiptavinur látinn vita við fyrsta tækifæri.
Vöruskil
Kaupandi hefur 14 daga frá afhendingu vöru til að hætta við kaupin, að því gefnu að varan sé ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi. Kvittun fyrir kaupum skal fylgja með, og er vara endurgreidd um leið og hún hefur verið móttekin af söluaðila, að því gefnu að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Flutnings- og póstburðargjöld fást ekki endurgreidd og greiðir kaupandi sendingarkostnað ef skila eða skipta á vöru.
Verð
Verð á síðunni geta breyst án fyrirvara.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Greiðsla
Hægt er að greiða með kortagreiðslu (Visa og Mastercard), með Apple Pay og Google Pay og annast færsluhirðing Landsbankann þær greiðslur. Einnig er hægt að greiða með Netgíró. Landsbankinn og Netgíró sjá um alla meðhöndlun á korta- og greiðsluupplýsingum.
Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur átt sér stað.
VSK. númer: 154742
